Er vinnufundur framundan?

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Við vitum öll hversu mikilvægir vinnufundir eru fyrir framgang verkefna og samheldni teymisins á vinnustaðnum. Við vitum líka að það er ekkert sem kætir og bætir fundina betur en ljúffengar veitingar sem gleðja bragðlaukana og skapa góða stemningu. Þess vegna er Tertugalleríið tilvalinn kostur þegar þú vilt gera fundina að eftirminnilegri upplifun.

Tertugalleríið er þekkt fyrir fjölbreytt úrval af ferskum og ljúffengum tertum, kökum, smáréttum og öðrum veitingum sem eru fullkomnar fyrir fundi í vinnunni. Hvort sem um ræðir lítið teymi eða stóran hóp getum við sérsniðið veitingarnar að þínum þörfum. Veisluveigar okkar eru ekki aðeins gæddar góðu handverki og vandaðri framleiðslu, heldur einnig tilbúnar til að gleðja alla í fundarherberginu.

Fundir eru tækifæri til að sameinast og leggja grunn að góðri vinnu. Með veitingum frá Tertugalleríinu getur þú tryggt að þessi tími verði ekki aðeins árangursríkur heldur líka ljúflega eftirminnilegur. Við hjá Tertugalleríinu getum einfaldað þér fyrirhöfnina með bragðgóðum og fallegum fundarveitingum.

Lúxus bitar og Sætir bitar

Lúxus- og Sætir bitar eru fullkomin samblanda af veisluveigum sem samanstanda af fagurfræði og einstökum bragðgæðum. Þessir bitar eru ekki aðeins gullfallegir á fundarborðið í vinnunni, heldur gleðja þeir bragðlaukana þeirra sem njóta bitana. Bitarnir eru tilvaldir fyrir hvers kyns veislu þar sem komið er saman til að fagna, gleðjast eða njóta samvistar við samstarfsfólk, vini eða ættingja.

Lúxus bitarnir samanstanda af tíu kransabitum, tíu makkarónukökum og tíu vatnsdeigsbollum með saltaðri karamellu og er bakkinn skreyttur með ferskum berjum.

Sætu bitarnir samanstanda af tíu mjúkum kókostoppum, tíu súkkulaðikökubitum og tíu vatnsdeigsbollum með léttþeyttum rjóma og er þessi bakki einnig skreyttur með ferskum berjum.

Smástykki frá Tertugalleríinu eru ljúf og sæt hamingja í einum bita og frábær viðbót í veisluna þína samhliða Lúxus- og Sætu bitunum. Hægt er að velja úr mörgum bragðgóðum og dísætum smástykkjum sem slá alltaf í gegn og þess þá heldur fegra smástykkin öll veisluborð þar sem þau eru borin fram, líkt og nýju bitarnir.

Tertugalleríið gerir þér einfalt fyrir að panta veitingar hratt og vel fyrir hvaða tilefni sem er. Það eina sem þú þarft að gera er að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn, því möguleikarnir eru nánast endalausir. Á vefsíðu Tertugallerísins finnur þú allar upplýsingar sem þú þarft fyrir pöntunarferlið og ef frekari spurningar vakna getur þú alltaf haft samband við okkur í tölvupósti, símleiðis eða á Facebook. Við reynum að svara öllum fyrirspurnum eins fljótt og hægt er, allt til að aðstoða þig á sem bestan máta.

Ferskbakað til að njóta samdægurs

Við hjá Tertugalleríinu viljum því ítreka að það er best að sækja pöntun sama dag og vinnufundurinn er, þannig að þú bjóðir upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!

Pantaðu tímanlega

Tertugalleríið hefur í mörg ár boðið upp á gott úrval af frábærum veisluveigum á hagstæðu verði fyrir fundarhöld í vinnunni. Veldu þínar veisluveigar og leyfðu okkar að liðsinna þér við undirbúninginn. Við mælum með því að þú skoðir úrvalið okkar og pantar tímanlega.

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.

Athugið að á álagstímum getur afgreiðslutími lengst.

Afhending og ábyrgð

Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar viðskiptavina. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.

Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.

Ef pöntun er einhverja hluta vegna ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla