Kynntu þér opnunar- og afgreiðslutíma Tertugallerísins um jól og áramót
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Nú líður senn að jólum. Afgreiðslu- og pantanatími Tertugallerísins breytist yfir stórhátíðirnar. Lokað er á aðfangadag og fram yfir sunnudaginn 27. desember. Lokað er líka á gamlaársdag og nýársdag. Pantanir í vefverslun Tertugallerísins taka mið af þessum breytta tíma. Hafðu í huga að ef þú ætlar að fá vöru afhenta á Þorláksmessu þá þarftu að leggja inn pöntun í síðasta lagi klukkan 12 þriðjudaginn 22. desember.
Afgreiðslutímar hjá okkur í Tertugalleríi verða yfir stórhátíðina með eftirfarandi hætti:
| Þriðjudagur | 22.des | Opið 8-14 |
| *Miðvikudagur (Þorláksmessa) | 23. des | Opið 8-14 |
| Fimmtudagur (aðfangadagur) | 24. des | Lokað |
| Föstudagur (jóladagur) | 25. des | Lokað |
| Laugardagur (annar í jólum) | 26. des | Lokað |
| Sunnudagur | 27. des | Lokað |
| **Mánudagur | 28. des | Opið 8-14 |
| Þriðjudagur | 29. des | Opið 8-14 |
| Miðvikudagur | 30. des | Opið 8-14 |
| Fimmtudagur | 31. des | Lokað |
| Föstudagur | 1. jan | Lokað |
| ***Laugardagur | 2. jan | Opið 10-12 |
| Sunnudagur | 3. jan | Opið 10-12 |
| Mánudagur | 4. jan | Opið 10-12 |
*Til að fá afhenta vöru á þorláksmessu þarf að leggja inn pöntun í síðasta lagi kl 12 þriðjudaginn 22. desember
**Til að fá afhenta vöru mánudaginn 28. desember þarf að leggja inn pöntun í síðasta lagi kl 16 mánudaginn 22. desember
***Til að fá afhenta tertu á lau, sun eða mán (2. – 4. janúar) þarf að leggja inn pöntun í síðasta lagi kl 12 miðvikudaginn 30. desember
Pantaðu tímanlega
Mundu að panta tertu og annað bakkelsi tímanlega því afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar. Ef þú ætlar að panta fyrir helgina þá þarftu að gera það fyrir klukkan 16:00 á fimmtudegi.
Hafðu í huga að nú geturðu líka greitt fyrir vörur sem þú kaupir á vef Tertugallerísins með debetkorti.
Deila þessari færslu
- Merki: gamlársdagur, Jól, Þorláksmessa