Fréttir
Brauðtertur - gómsæt nýjung frá Tertugallerí!
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Á dögunum kynntum við til sögunnar smurbrauð að dönskum hætti. Gómsætt og gullfallegt smurbrauðuð sló rækilega í gegn og því bjóðum við upp á enn eina nýjungina, fallegar, og gómsætar brauðtertur.
- Merki: afmæli, Erfidrykkja, Ferming, Fermingar, fermingartertur, Fermingarveisla, fyrirtækjatertur, Konudagur, skírnartertur, terta, tertur, tertur með mynd, Útskrift, Veisla, þitt tilefni
Nýjung frá Tertugallerí: Smurbrauð að dönskum hætti
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Við hjá Tertugallerí erum stolt af því að bjóða nú upp á brakandi ferska nýjung: smurbrauð að dönskum hætti fyrir öll tækifæri. Þú getur valið um margar tegundir af ljúffengu smurbrauði, bæði í heilum eða hálfum sneiðum en einnig kokteil snittur. Smurbrauðið er gómsætt og gullfallegt og verðið er einkar sanngjarnt.- Merki: fundarveitingar, fundir, kaffiveitingar, smurbrauð, snittur, tertugallerí, veisla, veisluveitingar
Brúðkaupsafmæli kallar á brúðartertu!
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Brúðkaup eru vinsælt umfjöllunarefni hjá okkur hér í Tertugalleríinu enda úrval okkar af brúðartertum frábært. Þegar haldið er upp á stóra viðburði í lífinu, líkt og brúðkaup, er tilvalið að fylgja því eftir og halda einnig uppá brúðkaupsafmælið en þau hafa hvert sitt nafn fyrstu 15 árin og svo á fimm ára fresti.Gómsætar tertur með mynd
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Fátt er vinsælla hjá okkur í Tertugallerí en tertur með mynd. Hvort sem tilefnið er afmæli, fermingar, fyrirtækjaboð eða útskrift eru tertur með mynd eftirsóttar og skemmtilegar. Í mörgum fyrirtækjum tíðkast svokallað föstudagskaffi og þá hefur verið vinsælt að prenta sniðugar og skemmtilegar myndir á tertuna.Gefðu pabba tertu á feðradaginn!
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Það er ekki langt síðan við Íslendingar fórum að halda upp á feðradaginn. Það gerðist fyrst árið 2006 og má segja að það hafi sannarlega verið kominn tími til. Feður eru mikilvægar fyrirmyndir barna sinna, stoð þeirra og stytta og mikilvægt að heiðra þá fyrir framlag sitt.